Gjafakort
2020
Smelltu á hnappinn til að skoða inneign kortsins
40 milljónir
í gjafakort
19. desember 2020 úthlutaði Pokasjóður 40 milljónum kr. í formi gjafakorta að andvirði 10.000 kr. hvert. Úthlutunina hlutu fjögur hjálparsamtök sem aðstoða þurfandi fjölskyldur um jólin, þau eru Hjálparstarf kirkjunnar, Mæðrastyrksnefnd, Fjölskylduhjálp Íslands og Hjálpræðisherinn.
Kortin má nýta í um 130 verslunum um land allt sem eru aðilar að Pokasjóði.
Tökum upp
fjölnota
Pokasjóður vill leggja sitt af mörkum til að draga úr notkun á plastpokum og hrinti úr vör átaki undir slagorðinu „Tökum upp fjölnota“ þar sem almenningur var hvattur til að nota fjölnota poka í stað plastpokanna.
Um
Pokasjóð
Pokasjóður, sem áður hét Umhverfissjóður verslunarinnar úthlutar styrkjum til verkefna sem heyra undir almannaheill. Má þar nefna verkefni eins og umhverfismál, menningarmál, listir, íþróttir og mannúðarmál.
Pokasjóður fær tekjur af sölu plastburðarpoka í verslunum.
Pokasjóður skiptist í tvær deildir, þ.e. annars vegar sameignarsjóð og hins vegar séreignarsjóð. Í sameignarsjóð greiðir hver verslun sem tekur þátt í sjóðnum og er úthlutað úr þeim hluta í nafni Pokasjóðs einu sinni á ári eða oftar ef svo ber undir. Séreignarsjóður er eign hverrar verslunar eða verslunarfyrirtækis og er úthlutað úr honum í nafni viðkomandi verslunar.