Heimasiduhaus.png
 

Pokasjóður verslunarinnar var stofnaður árið 1995 og frá þeim tíma hefur sjóðurinn úthlutað samtals 3.000 milljónum til margvíslegra verkefna um land allt. Nú, 26 árum síðar er hins vegar komið að leiðarlokum og af því tilefni hefur verið ákveðið að auglýsa eftir umsóknum um styrki sem afhentir verða á árinu 2021.

Fyrst og fremst er horft til verkefna á sviði umhverfismála og útivistar. Starfandi félög eða félagasamtök sem vinna að metnaðarfullum verkefnum á þessum tveimur sviðum eru hvött til að sækja um á pokasjodur.is en frekari upplýsingar er þar að finna. 


Með umsókn þessari skal fylgja ítarleg lýsing á verkefninu, framkvæmdaáætlun, kostnaðaráætlun og hvernig fjárstyrknum verður varið ef til úthlutunar kemur. Eins þarf að koma fram tímaáætlun, hvenær verkefnið hófst og hvenær því lýkur.

Vinsamlega kynnið ykkur leiðbeiningar að neðan vegna umsóknar. Einnig má hlaða niður leiðbeiningum á Word formi.

 

Verði umsókn um styrk hafnað mun Pokasjóður ekki rökstyðja svarið.

Komi til styrkveitingar mun fyrsta greiðsla (allt að helmingur úthlutunarfjárins) koma til greiðslu einum mánuði eftir úthlutunardag. Lokagreiðsla mun fara fram þegar styrkþegi hefur skilað inn skýrslu um framgang verkefnisins og skýrslan hlotið samþykki sjóðsins. 

Umsóknarfrestur er til 12. apríl 2021.

 

 

Leiðbeiningar vegna umsókna í Pokasjóð 2021

Aðeins er tekið við umsóknum með rafrænum hætti, þ.e. sem fylltar eru út hér á heimasíðu sjóðsins.

Við mælum með að umsóknin sé prentuð út ÁÐUR en hún er send.

Öllum umsóknum er svarað með tölvupósti, þ.e. á það póstfang sem umsóknin var send frá. Gera má ráð fyrir því að svar berist í maí lok.

Eins og fram kemur á heimasíðu sjóðsins er einkum horft til tveggja sviða þegar kemur að úthlutunum úr sjóðnum:

  • Umhverfismál

  • Útivist

Pokasjóður hefur áður auglýst eftir umsóknum og með tímanum hafa þróast vinnureglur við yfirferð og val á verkefnum til að styrkja. Eftirfarandi almenn atriði hafa verið höfð til viðmiðunar: 

  • Markmið með verkefnum þurfa að vera skýr og von um árangur.

  • Verkefnin þurfa að koma að gagni á Íslandi.

  • Verkefnin þurfa að koma almenningi eða sem flestum til góða.

  • Auki þekkingu og virðingu manna á náttúru og umhverfi.

  • Bæti aðgengi almennings að íslenskri náttúru.

Öllum er frjálst að senda inn umsókn til Pokasjóðs en rétt er að benda á að reynslan hefur kennt okkur eftirfarandi:

  • Aðilar sem sækja um og hagnast á verkefninu hafa ekki hlotið styrki. Má þar nefna verkefni eins og húsbyggingar, fegrun á nánasta umhverfi, golfvellir o.s.frv.

  • Verkefni eiga helst að vera á vegum opinna félagasamtaka en síður á vegum félaga eða klúbba með takmarkaðan aðgang almennings eða á vegum opinberra aðila (ríkisstofnana, sveitarfélaga eða félaga á þeirra vegum).

  • Utanlandsferðir og atburðir erlendis eru almennt ekki styrkt.

  • Pokasjóður hefur almennt ekki veitt námsstyrki.

Að þessu sinni verður horft sérstaklega til mótframlags umsækjanda og gera má ráð fyrir að hluti þeirrar upphæðar sem til ráðstöfunar er fari í verkefni þar sem fjárframlag umsækjanda er til jafns við styrkupphæð. (króna á móti krónu).

Pokasjóður